Sicuro stígvélin eru einstaklega létt og hlý en þau vega aðeins 1.400 grömm parið. Sicuro stígvélin eru gerð úr EVA efni sem veitir góða einangrun og léttleika en eru með sóla úr Polyurethane efni sem gefur meiri mýkt og betra grip en sóli úr EVA efni. Sicuro stígvélin eru tilvalin í köldu umhverfi og einangra við allt að -40°C frost ef notaður er laus filtsokkur með sem hægt er að fá sem aukahlut. Stígvélin eru með ökklavörn, stáltá og stunguvörn í sóla. Einnig er höggdeyfir í hæl og innlegg fylgja með. Stígvélin þola vel olíu, saltvatn, mykju, eldsneyti og önnur lífræn leysiefni.
Fáanleg í stærðum 38-48.