BS Sensifoam klórkvoða f/ál 20 ltr/24kg

Kvoðusápa með klór sem má fara á léttmálma.

Alkalískt hreinsiefni til notkunar í sláturhús, matvæla-, drykkjar- og mjólkuriðnaði. Hentar til þrifa á gólfum, veggjum, vinnuborðum, tækjum, skurðarbrettum, tönkum, færiböndum og öðrum áhöldum. Má nota á flesta léttmálma; ál, galvaníseringu, plast og fleiri yfirborð.

Vinnur vel á eggjahvítuefnum og fitu, eyðir blettum og ólykt, hindrar myndun á biofilmu. Virkar í hörðu vatni, auðvelt að skola af.

Má nota í kvoðukerfum eða háþrýstikerfum, hentar einnig til notkunar við handvirk þrif.

Blöndun: 0,2-5%

pH-gildi: 13,5-14 (í 1% blöndu 11,5-12,5)

Vörunúmer:
87010520
Skráðu þig inn til að panta