Ecoclean 102 kvoðusápa m/klór

Ecoclean 102 kvoðusápa með klór fyrir matvælaiðnað er alkalískt alhliða hreinsiefni til notkunar í sláturhús-, matvæla-, drykkjar- og mjólkuriðnaði.

Hentar til þrifa á gólfum, veggjum, skurðarbrettum, tönkum, færiböndum og öðrum áhöldum. Má nota á yfirborð úr ryðfríu stáli og keramiki.

Vinnur vel á eggjahvítuefnum og fitu. Eyðir blettum og ólykt. Hindrar myndun á biofilmu.  Auðvelt að skola af.

Má nota í kvoðukerfum eða háþrýstikerfum.

Hentar til notkunar við handvirk þrif.

Blöndun 0,5-5%

pH-gildi - 13,5-14 (í 1% blöndu 11,8-12,8)

Vörunúmer:
87011010
Skráðu þig inn til að panta