BS Extrafoam kvoðusápa með klór fyrir matvælaiðnað er alkalískt alhliða hreinsiefni til notkunar í sláturhús-, matvæla-, drykkjar- og mjólkuriðnaði.
Hentar til þrifa á gólfum, veggjum, skurðarbrettum, tönkum, færiböndum og öðrum áhöldum. Má nota á yfirborð úr ryðfríu stáli.
Vinnur vel á eggjahvítuefnum og fitu. Eyðir blettum og ólykt. Hindrar myndun á biofilmu. Virkar í hörðu vatni. Auðvelt að skola af.
Má nota í kvoðukerfum eða háþrýstikerfum.
Hentar til notkunar við handvirk þrif.
Blöndun 0,5-3%
pH-gildi - 13,4-14 (í 1% blöndu 11,5-12,5)