Saury
Saury er langvaxinn fiskur líkt og hornfiskar og getur
orðið 40 cm að stærð en er tíðast 25 – 35 cm þegar
hann er veiddur. Þessi fisktegund á heimkynni í
hlýjum og heittempruðum sjó og veiðist í Norður-
Kyrrahafi frá júní fram í nóvember. Ársveiðin
hefur verið stöðug um áratuga skeið eða þrjú- til
fjögurhundruð þúsund lestir. Saury hefur hátt
fituinnihald sem helst nokkuð stöðugt allt árið. Það
sem gerir hann að góðum beitufisk er hversu roð
hans er sterkt. Þetta gerir það að verkum að hann
losnar síður af króknum og veiðir því lengur en
önnur hefðbundin beita. Hann er í fjórum stærðum
sem eru frá 90 grömmum og upp í 160 grömm á
stærð. Hann kemur í 10 kg pakkningum.
Skráðu þig inn til að panta